,,Tónlist er sterkt friðar- og sameiningarafl. Hún er sjálfbær list sem endurnýjar sig sjálf og stendur fyrir sig sjálf hvar sem hún er flutt og túlkuð með persónulegum brag flytjandans’’
- Ólöf Sigursveinsdóttir
Ólöf Sigursveinsdóttir
Ólöf Sigursveinsdóttir er fædd í Reykjavík og ólst upp á Seltjarnarnesi. Hún er fædd inn í tónlistar fjölskyldu þar sem móður hennar er söngkona og faðir hennar hornleikari og hljómsveitarstjóri. Hún varð heilluð af sellóinu fimm ára gömul og hlaut strax menntun í Tónskóla Sigursveins við Hellusund og við Tónlistarskólann í Reykjavík í Skipholti. Síðar helt hún til náms í sellóleik við Tónlistarháskólann í Stuttgart og lauk Bachelor og Mastersgráðu hjá sellóleikaranum Hans Häublein með hæstu einkunn. Samhliða náminu sótti hún tæknitíma í hljómsveitarstjórn við sama skóla og hóf að stjórna hljómsveit og kór í Þýskalandi 22 ára gömul. Hún hefur leikið sem sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, SinfoNord og Hljómsveit íslensku óperunnar og hefur verið virk í íslensku tónlistarlífi frá 2011 og leikið einleikskonserta með hljómsveitum.
Ólöf var barokksellóleikari Kammerhópsins ReykjavíkBarokk frá 2012-2022 og stofnmeðlimur. Hún leikur því jöfnum höndum forna og nýja tónlist. Sígildur tónlistarflutningur og möguleikar á áhugaverðum viðburðum, sérstaklega í dreifðum byggðum, er Ólöfu hugleikið og þar með möguleikar á tónlistarflutningi á landsbyggðinni og aðgangur í heimabyggð að verkum tónbókmenntanna. Háskólagráða hennar í tónlistarfjölmiðlun fær hana til að taka óvænta listræna snúninga sem geta gert tónleika Ólafar þess virði að heimsækja.
Ungverskt selló
Ólöf spilar á sjaldgæft, ungverskt selló með heilskorinni bakhlið, smíðað 1845 af Franz Nagy í Pest (Búdapest). Hún leikur á boga frá ungverska nútímabogasmiðnum, Péter Ivany, sem er úr dökkum pernambucco-við.
Barokkselló Ólafar er þýskt frá 18. öld.
,,Að leika á selló lyftir þér út úr sjálfum þér og opnar þér óráðinn stað’’
Tilvitnun: Jacqueline du Pré