„Nýlega hefur Ólöf fetað nýja braut hljómsveitarstjórnar. Það er þá sem ég fékk að vinna með henni. Ólöf reyndist þaulreynd á æfingum og á tónleikum og hafði góðan skilning á hinum flóknu þáttum þessa mikla meistaraverks."
- Joseph Ognibene.
- Fyrrum fyrsta horn, Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjórn - Íslenskir strengir stofnaðir 2017
Hljómsveitartsjótn Íslenskra strengja er á höndum Ólafar sem og hönnun hugmynda og framkvæmd fyrir tónleika hljómsveitarinnar. Hún vinnur náið með ólíkum tónskáldum og leitast við að skapa spennandi samtal um túlkun við frábæra flytjendur.
Konsertmeistarar: Sif Tulinius, Gróa Valdimarsdóttir, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Chrissie Telma Guðmundsdóttir and Agnes Eyja Guðmundsdóttir.
Íslenskir strengir hafa einnig frumflutt erlendar tónsmíðar á Íslandi t.d. frá Lettlandi og Noregi. ÍS hefur haldið nokkra sjálfstæða tónleika í Hörpu en einnig sóst eftir að koma fram í tónleikaröðinni Sígildir sunnudagar í Norðurljósum og Tíbrá í Salnum í Kópavogi. ÍS hefur einnig spilað í tónleikahúsum á landsbyggðinni s.s. Menningarhúsinu Tjarnarborg, í Hvoli og í Hveragerðiskirkju. Hér neðar má sjá lista um tónleika, flytjendur og tónskáld sem ÍS hefur unnið með. Fjölmargir einsöngvarar og einleikarar hafa komið við sögu en einnig ólík tónskáld landsins á sviði samtónlistar hafa lagt hljómsveitinni til verk sín. Þannig var það gjöf John Speight til Ólafar að frumflytja Kammerkonsert fyrir píanó og strengi eða Cantus III árið 2023. Einleikari var Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari og er konsertinn skrifaður fyrir hana.
- Bach og börnin/Bach and the Child 2022 Harpa tónleikahús árið 2022. Flytjendur 80 manns. Flytjendur: Stúlknakórinn Graduale Futuri og Drengjakór Reykjavíkur, Einar Bjartur Egilsson píanó, Peter Tompkins óbó, Þóra Einarsdóttir sópran, Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór. Tónskáld: Johann Sebastian Bach, Snorri Sigfús Birgisson, Hafliði Hallgrímsson og Henry Purcell
- Hjálmar & Vasks – 2019 Flytjendur: Íslenskir strengir og kórinn Ægisif. Pantað nýtt verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson og frumflutningur á Íslandi: Peteris Vasks: Musica Adventus eftir lettneska Peteris Vasks (1934).
- Hér má nálgast flutninginn: https://studio.youtube.com/video/sswKi5aL6Q4/edit
Laudem Domini, kantata eftir Hjálmar H. Ragnarsson fyrir blandaðan kór, sópran, sóló-víólu og strengjasveit. Frumflutningur
- Íslenskir strengir + blásarar í Norðurljósum 2018 Harpa. Flytjendur 34 strengir, blásarar, harpa og flygill. Einsöngvarar Hanna Dóra Sturludóttir Mezzo-sópran og Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór. Joe Ognibene horn. Á efnisskránni G.Mahler: Kindertotenlieder, Benjamin Britten: Serenaða fyrir tenór, horn og strengi, Carl Sjöberg: Tonerna.
- Corona og söknuður 2021 Harpa Norðurljós og Hveragerðiskirkja.
John Speight: Elegy fyrir klarinett og strengi frumflutningur
Sigursveinn D. Kristinsson: Sólin heim úr suðri snýr v/ljóð Jónasar Hallgrímssonar
Kristín Lárusdóttir: Söknuður fyrir kvæðakonu, klarinett og strengi frumflutningur, Hrólfur Sæmundsson: Corona fyrir strengi. Frumflutningur.
Einsöngvarar Hrólfur Sæmundsson baritón, Kristín Lárusdóttir kvæðakona, einleikari Ármann Helgason klarinett.
Íslenskir strengir í Tjarnarborg – 2023 Menningarhúsið Tjarnarborg, Ólafsfjörður. Efnisskrá á Berjadögum. Einleikarar Tinna Þorsteinsdóttir píanó, Björg Brjánsdóttir þverflauta og Ármann Helgason klarinett. Á efnisskránni Anna Þorvaldsdóttir: Illumine, Hugi Guðmundsson: LUX, John Speight: Elegy, Jean Sibelius: Impromptu.
Íslenskir strengir og frumfluttar tónsmíðar 2018-2023
Birgit Djupedal (1994): ,,Sprund’’ (2017) – Svíta f. strengi 18 mínútur Frumflutt Harpa 2018
Hjálmar H. Ragnarsson (1952): Laudem Domini (2019) fyrir Blandaðan kór, sóló-víólu, sópran og strengjasveit 14 mínútur Frumflutt Kristskirkja 2019
Kristín Lárusdóttir (1974): Söknuður (2011) fyrir kvæðakonu, klarinett og strengi v/ljóð Ólínu Andrjesdóttur 9 mínútur. Frumflutt Harpa 2021.
Hrólfur Sæmundsson (1973): Corona (2020) 23 mínútur Frumflutt Harpa 2021
John Speight (1945):
Elegy fyrir klarinett og strengi 7 mínútur. Frumflutt Harpa 2021
Ármann Helgason klarinett
Cantus III (2008) – konsert fyrir sóló-píanó og strengi. Frumflutt Berjadagar 2023
Tinna Þorsteinsdóttir píanó
- Ertu að leita að hljómsveitarstjóra?
- Langar þig að koma á fót tónleikum með hljómsveit?
olofsi@gmail.com eða [email protected]
+354 6152231